Adam Sandler og Deeds

Adam Sandler er nú í tökum á kvikmyndinni Deeds. Mun þetta vera endurgerð á mynd Frank Capra frá 1936, Mr. Deeds goes to town. Í myndinni leikur Sandler Longfellow Deeds, mann sem á heima í smábæ og á sinn eigin litla pizzastað. Án þess að hann viti af því deyr milljarðamæringurinn frændi hans, sem hann þekkir ekki neitt. Í ljós kemur að frændinn hefur arfleitt Deeds að öllu saman, og þá verður Deeds að kljást við ill öfl innan fyrirtækisins og einnig fallegan kvenkyns blaðamann sem vill fletta ofan af honum sem svikahrapp og verður hún leikin af Wynona Ryder. Væntanlega þarf ekki að spyrja að leikslokum.