Nýtt í bíó – Assassin’s Creed

Ævintýramyndin Assassin’s Creed, sem gerð er eftir samnefndum vinsælum tölvuleik, verður frumsýnd á mánudag í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói og Borgarbíói, Akureyri.

assassins

Myndin fjallar um inngrip manns að nafni Callums Lynch í sögulega atburði á tímum spænska rannsóknarréttarins, en Callum þessi er afkomandi hins vígfíma Aguilar sem ásamt félögum sínum barðist á móti óréttlæti og illum mönnum sem voru uppi á þessum tíma. Með sérstakri tækni í nútímanum getur Callum ferðast aftur í tímann, tekið sér bólfestu í líkama Aguilar og haldið verkum hans áfram.

Sjáðu stiklu úr myndinni hér fyrir neðan:

 

Assassin’s Creed er kvikmynd byggð á tölvuleikjaseríu sem notið hefur gríðarlegra vinsælda allt frá því að fyrsti leikurinn kom út árið 2007. Þeir eru nú orðnir níu talsins og hafa selst í tæplega 100 milljónum eintaka og því engin furða að margir bíði spenntir eftir að þessi mynd komi í bíó.

Leikstjórn: Justin Kurzel

Helstu leikarar: Michael Fassbender, Jeremy Irons, Marion Cotillard

Áhugaverðir punktar til gamans:

-Söguþráðurinn í myndinni er alveg nýr, þ.e. hann er ekki útfærsla á neinum af þeim sögum sem sagðar hafa verið í tölvuleikjunum fyrir utan upphafið að því hvernig Callum Lynch verður að Aguilar.

-Michael Fassbender er sjálfur einn af aðalframleiðendum myndarinnar og réði því að Justin Kurzel væri fenginn í leikstjórnina, en þeir tveir unnu líka saman í síðustu mynd Justins, Macbeth.

-Fyrir gerð myndarinnar tók Michael Fassbender sig til og spilaði tölvuleikina, en það hafði hann ekki gert áður.

-Í myndinni er að finna lengsta áhættufall sem framkvæmt hefur verið í kvikmynd í 35 ár þegar áhættuleikarinn Damian Walters lætur sig detta úr 38 metra hæð og lendir á 102 kílómetra hraða.

assass