Náðu í appið
Rumble Fish

Rumble Fish (1983)

"No leader can survive becoming a legend."

1 klst 34 mín1983

Rusty James er upprennandi vandræðaunglingur, sem horfir með söknuði til þess tíma þegar götugengin voru upp á sitt besta og eldri bróðir hans, The Motorcycle...

Rotten Tomatoes77%
Metacritic63
Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

Rusty James er upprennandi vandræðaunglingur, sem horfir með söknuði til þess tíma þegar götugengin voru upp á sitt besta og eldri bróðir hans, The Motorcycle Boy, stjórnaði öllu í genginu The Packers. Áður en Motorcycle Boy hvarf fyrir tveimur mánuðum, þá gerði hann samkomulag sem útrýmdi götuslagsmálum gengjanna. Þegar Rusty James brýtur þetta vopnahlé þegar hann slæst við Biff Wilcox, og særist illa, þá birtist eldri bróðirinn skyndilega aftur, en er annars hugar og lítt áhugasamur um fortíð sína sem helsti foringinn í hverfinu. Næstu daga virðist sem aumleg tilvera James sé að hrynja til grunna; kærastan fer frá honum, og hann missir allt sjálfstraust. Framtíðin er svört. En í gegnum reynslu Motorcycle Boy þá lærir hann loksins að hætta að lifa eftir væntingum annarra, og losnar undan eigin innri djöflum.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

American ZoetropeUS
Hotweather Films