Náðu í appið
The Parent Trap

The Parent Trap (1998)

Disney's The Parent Trap

"Twice the Fun, Double the Trouble."

2 klst 7 mín1998

Tvær litlar stúlkur fara í sumarbúðir í Maine í Bandaríkjunum, þær eru báðar rauðhærðar og ótrúlega líkar.

Rotten Tomatoes87%
Metacritic63
Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Söguþráður

Tvær litlar stúlkur fara í sumarbúðir í Maine í Bandaríkjunum, þær eru báðar rauðhærðar og ótrúlega líkar. Þar sem þær sitja af sér refsingu fyrir slæma hegðun og byrja að skiptast á skoðunum og upplýsingum komast þær að því að þær eru tvíburar. Þær voru skildar að sem kornabörn þegar foreldrar þeirra skildu. Annie ólst upp með Elizabeth móður þeirra í London en Hallie á búgarði í Kaliforníu með föður þeirra, Nick. Þær verða í senn glaðar og hissa. Báðar hafa alltaf saknað hins foreldrisins og langað til að kynnast því. Eftir örlitlar vangaveltur ákveða þær að skipta um heimili án þess að segja neinum frá. Annie kennir Hallie breskan framburð til að ekki komist upp um þær þegar hún kemur til London og Hallie sér einnig til þess að Annie nái góðum bandarískum framburði áður en hún hittir pabba þeirra í Kaliforníu. Áætlun þeirra heppnast og í fyrstu grunar engan neitt. Leikar fara svo að æsast þegar Annie kemst að því að faðir þeirra ætlar að giftast Meredith nokkurri, sem er dæmigert flagð undir fögru skinni og sækist einungis eftir auðævum hans. Tvíburarnir taka til sinna ráða enda staðráðnar í að ef þeim takist að láta foreldrana hittast verði þau ástfangin aftur og taki saman.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Walt Disney PicturesUS
The Meyers/Shyer CompanyUS

Gagnrýni notenda (4)

Þetta er geðveikt skemmtileg mynd af mínu mati ég mæli hiklaust með henni.Annie og Hallie eru tvær stelpur sem hittast í sumarbúðum og komast að því að þær eru tvíburar.. Þær hafa ...

Parent trap fjallar um stelpurnar Annie og Hallie. Þær eru tvær stelpur sem hittast í sumarbúðum og komast að því að þær eru tvíburar. Hallie hefur aldrei kynnst mömmu sinni og Annie hef...

The Parent Trap er úrvals mynd, sem ekki bara börn geta haft gaman af. Aðalleikkonan, sem leikur tvíburasysturnar, stendur sig með mikilli prýði, og allar aukapersónur eru ágætlega gerðar, ...

Frábær fjölskyldumynd. Stúlkan sem leikur tvíburana á mikið lof skilið leikur af miklu öryggi. Fullt af skemmtilegum aukapersónum. Dóttir mín átta ára getur horft á þessa mynd aftur og...