Hrein snilld. Leikararnir allir frábærir, þar ber helst að nefna Kevin Spacey sem er helvíti flottur í hlutverki 'nouveau riche' listaverkasala í Suðurríkjum BNA. Kynklæðskiptingurinn La...
Midnight in the Garden of Good and Evil (1997)
"Welcome to Savannah, Georgia. A City Of Hot Nights And Cold Blooded Murder."
Myndin fjallar um morð og síðan réttarhöldin yfir Jim Williams: athafnamanni, listaverkasafnara, antík sölumanni, bóhem og homma sem var hálfur inni í skápnum.
Bönnuð innan 6 ára
OfbeldiSöguþráður
Myndin fjallar um morð og síðan réttarhöldin yfir Jim Williams: athafnamanni, listaverkasafnara, antík sölumanni, bóhem og homma sem var hálfur inni í skápnum. John Kelso, blaðamaður, er staddur í Savannah innan um fallegan arkitektúrinn og ýmis furðulegheit, að skrifa grein um eina af frægum jólaveislum Williams. Hann heillast af Williams allt frá upphafi en forvitni hans er trufluð þegar hinn ofbeldisfulli, ungi og kynþokkafulli elskhugi, Billy kemur til sögunnar. Síðar um kvöldið þá er Billy látinn, og Kelso ákveður að dvelja áfram í bænum til að fjalla um morðréttarhöldin. Hann kynnist ótemjunni Lady Chablis, sem er dragdrottning og gamanleikkona, einnig kynnist hann Sonny Seiler sem er lögfræðingur Williams, en hundurinn hans er frægur fyrir að vera lukkudýr Georgia Bulldogs. Þá kemur við sögu skrýtinn maður sem er með flugur í bandi sem er fast við kragahornið hans og hann hótar daglega að menga vatnið.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Myndir
Bakgrunnsmyndir
Plaköt
Framleiðendur



Gagnrýni notenda (3)
Midnight in the garden of good and evil er frábærlega vel gerð, vel leikin og vel leikstýrð mynd. Kevin Spacey er náttúrulega frábær eins og vanalega og ekki er John Cusack verri. Þetta er m...
Það er óskarsverðlaunaleikstjórinn Clint Eastwood sem leikstýrir þessari vönduðu mynd sem byggð er á samnefndri metsölubók eftir John Berendt og segir frá afar flókinni rannsókn á enn...























