Náðu í appið
Win a Date with Tad Hamilton!

Win a Date with Tad Hamilton! (2004)

"In every love story, there's only room for one leading man."

1 klst 35 mín2004

Rosalee Futch vinnur í matvöruverslun í strjálbýlinu í West Virginia.

Rotten Tomatoes55%
Metacritic52
Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð
Ástæða:KynlífKynlífVímuefniVímuefniBlótsyrðiBlótsyrði

Hvar má horfa

Leiga
Síminn

Söguþráður

Rosalee Futch vinnur í matvöruverslun í strjálbýlinu í West Virginia. En stelpa úr smábæ getur alveg átt sér stóra drauma, og Rosalee dreymir um það að dag einn muni hún hitta átrúnaðargoð sitt úr kvikmyndunum, Tad Hamilton. Hún fær tækifæri á að láta drauminn rætast þegar efnt er til samkeppni þar sem verðlaunin eru stefnumót með Tad Hamilton. Rosalee vinnur keppnina, besta vini hennar og samstarfsfélaga Pete til talsverðrar gremju, en hann er ástfanginn af Rosalee, án þess að hann hafi sagt henni frá því. Sá sem bjó til keppnina var umboðsmaður Tad, Richard Levy, og framkvæmdastjóri hans sem einnig heitir Richard Levy, til að bæta ímynd Tad, sem hefur haft á sér ímynd "slæma stráksins". Þegar Tad og Rosalee hittast þá kemst hann að því hverju hann hefur verið að missa af í hinu daglega venjulega lífi og flytur til West Virgina, og draumur Rosalee rætist, en verkefnið snýst upp í martröð fyrir Richard Levy, Richard Levy og einkum og sér í lagi, Pete.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

DreamWorks PicturesUS
Lucy Fisher/Douglas Wick ProductionsUS

Gagnrýni notenda (2)

Mér fannst þessi mynd voða sæt og skemmtileg! Leikarnir sætir en reyna þó ekkert á leikhæfileika þeirra! samt besta skemmtun

★★★★★

Þetta er frábær skemmtun fyrir alla sem hafa gaman af rómantík, húmor, öfund og vináttu. Myndir fjallar um Rosu sem býr í litlum bæ og vinnur í matvöruverslun ásamt tveimur vinum sínum...