Náðu í appið
Alvin and the Chipmunks: The Squeakquel

Alvin and the Chipmunks: The Squeakquel (2009)

Alvin og íkornarnir 2

"The Boys are back in town... and they have competition"

1 klst 28 mín2009

Alvin og íkornarnir 2 er framhald af hinni vinsælu Alvin and the Chipmunks frá 2007 og fylgjumst við áfram með íkornaþríeykinu Alvin, Simon og Theodore...

Rotten Tomatoes21%
Metacritic41
Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Hvar má horfa

Söguþráður

Alvin og íkornarnir 2 er framhald af hinni vinsælu Alvin and the Chipmunks frá 2007 og fylgjumst við áfram með íkornaþríeykinu Alvin, Simon og Theodore sem hafa gert það gott sem poppstjörnur. Þegar breytingar verða á högum þeirra enda þeir í umsjá rúmlega tvítugs frænda Dave Saville, hins seinheppna Toby. Auk þess eru þeir skikkaðir til að fara í skóla og stefnir því allt í að þeir verði að leggja tónlistarferilinn á hilluna í bili. Þeir hafa aftur á móti ekki verið lengi í skólanum þegar þeir komast að því að hann er í miklum fjárhagsvandræðum og upp kemur sú hugmynd að þeir keppi í hjómsveitarkeppni fyrir hönd hans til að reyna að vinna 25.000 dollara, sem eru í verðlaun fyrir fyrsta sætið. Það verður ekki auðvelt fyrir íkornana því aðalandstæðingarnir eru engar aðrar en hinar hæfileikaríku og sjarmerandi Skríkjurnar, annað íkornaþríeyki sem samanstendur af Birgittu, Elínborgu og Jónu. Það munu neistar fljúga á milli þeirra, því báðir ætla sér aðalverðlaunin...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Fox 2000 PicturesUS
Bagdasarian ProductionsUS
Regency EnterprisesUS
20th Century FoxUS
Dune EntertainmentUS

Gagnrýni notenda (1)

Glötuð mynd

★☆☆☆☆

Eftir áhorf mitt á fyrstu myndini sem var rusl ákvað ég samt að gefa mynd nr. 2 séns og sé ég svo sannarlega eftir því. Það er í raun bara til skammar að þetta skuli vera kvikmynd. Þv...