Náðu í appið
Operation Dumbo Drop

Operation Dumbo Drop (1995)

"When you weigh four tons, it's hard to be a secret weapon."

1 klst 47 mín1995

Dag nokkurn árið 1968 gerðist dálítið merkilegt.

Rotten Tomatoes26%
Metacritic48
Deila:
6 áraBönnuð innan 6 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiHræðslaHræðsla

Söguþráður

Dag nokkurn árið 1968 gerðist dálítið merkilegt. 3.600 kg. þungum fíl var hent út úr fallhlíf í Víetnam. Ástæðan var loforð liðsforingja nokkurs, Sam Cahill, þar sem hann hét þorpsbúum Dak Nhe að hann skyldi koma fyrir fíl í þorpi þeirra. Þetta fannst honum skylda sín vegna hjálpar þorpsbúa við bandaríska herinn. Sama dag féll Martin Luther King fyrir hendi morðingja og hefur þessi sannsögulega saga ávallt og eðlilega fallið í skugga þess. Þar til núna. Walt Disney kvikmyndafyrirtækið hefur gert kvikmynd um þetta sögulega atvik. Segir hún frá aðgerð fimmtu sérsveitar bandaríska hersins í Víetnam við leitina að rétta fílnum og framkvæmd verksins. Á mjög svo sérstakan hátt var fílnum svo komið til þorpsins.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Interscope CommunicationsUS
Walt Disney PicturesUS
PolyGram Filmed EntertainmentUS