Náðu í appið
The Lego Movie

The Lego Movie (2014)

"Assembling in 2014 / Hver kubbur skiptir máli."

1 klst 40 mín2014

Hemmi er bara venjulegur Lego-kubbakarl sem fyrir misskilning er settur í það vanþakkláta starf að bjarga heiminum.

Rotten Tomatoes96%
Metacritic83
Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Söguþráður

Hemmi er bara venjulegur Lego-kubbakarl sem fyrir misskilning er settur í það vanþakkláta starf að bjarga heiminum. Aðalpersóna myndarinnar er hinn löghlýðni og glaðlyndi verkakubbakarl Hemmi sem hefur nákvæmlega enga reynslu af því að byggja lego án leiðbeininga. Hann vill bara fara eftir settum reglum. Byltingarsinnar vilja hins vegar fá að kubba án leiðbeininga og þeir eru sannfærðir um að Hemmi sé hinn útvaldi og geti kubbað það sem honum sýnist. Hann er því fenginn til að leiða baráttuna gegn hinum illa Harðstjóra sem hefur bannað að kubbað sé án viðeigandi leiðbeiningabæklinga. Í fyrstu líst Hemma ekkert á hið nýja hlutverk sitt enda hefur hann ekki hugmynd um hvernig á að kubba án leiðbeininga. Sem betur fer nýtur hann aðstoðar góðra stuðningskubba eins og ofurkubbanna Batmans, Grænu luktarinnar og Supermans því annars væri útlitið dökkt ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Village Roadshow PicturesUS
RatPac EntertainmentUS
The LEGO GroupDK
Lin PicturesUS
Vertigo EntertainmentUS
Warner Animation GroupUS