The Judge
2014
Ekki aðgengileg á veitum á Íslandi
Frumsýnd: 17. október 2014
Defend your Honor.
141 MÍNEnska
49% Critics
72% Audience
48
/100 Hank Palmer er eftirsóttur lögfræðingur sem er þekktur
fyrir að taka að sér mál hvítflibbaglæpamanna og
vinna þau fyrir dómi. Hann er frá litlum bæ í Indiana
þar sem faðir hans er dómari en hefur hvorki komið
þangað í fjölda ára né haft mikil samskipti við fjölskyldu
sína og æskuvini síðan hann yfirgaf svæðið.
Þegar móðir Hanks deyr heldur hann... Lesa meira
Hank Palmer er eftirsóttur lögfræðingur sem er þekktur
fyrir að taka að sér mál hvítflibbaglæpamanna og
vinna þau fyrir dómi. Hann er frá litlum bæ í Indiana
þar sem faðir hans er dómari en hefur hvorki komið
þangað í fjölda ára né haft mikil samskipti við fjölskyldu
sína og æskuvini síðan hann yfirgaf svæðið.
Þegar móðir Hanks deyr heldur hann til heimabæjar síns til að vera viðstaddur
útförina og ætlar sér í fyrstu ekki að stoppa miklu lengur en
nauðsyn krefur. Í ljós kemur að það er ekki bara stirt á milli hans og
föður hans, hins aldna dómara Josephs Palmer, heldur á Hank einnig
óuppgerð mál við bræður sína tvo og fyrrverandi unnustu, Samönthu.
En dvöl Hanks í bænum eftir útförina á eftir að verða lengri og viðburðaríkari
en hann gerði ráð fyrir þegar faðir hans er ákærður fyrir að hafa
ekið á mann og banað honum, og síðan stungið af frá vettvangi ...... minna