Náðu í appið
Cinderella

Cinderella (2015)

Öskubuska

"Ævintýrið lifnar við."

1 klst 45 mín2015

Myndin er byggð á sögu Charles Perrault og segir frá því þegar líf Ellu breytist skyndilega þegar hún lendir undir náð og miskunn stjúpfjölskyldu sinnar þegar faðir hennar fellur frá.

Rotten Tomatoes84%
Metacritic67
Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Söguþráður

Myndin er byggð á sögu Charles Perrault og segir frá því þegar líf Ellu breytist skyndilega þegar hún lendir undir náð og miskunn stjúpfjölskyldu sinnar þegar faðir hennar fellur frá. Þó að illa sé farið með hana á heimilinu, þá er hún ákveðin í að virða hinstu ósk móður sinnar og "vera hugrökk og góð". Síðan birtist myndarlegur ókunnugur karlmaður sem hún hittir úti í skógi, sem gæti verið prins ( hann er auðvitað prins ) og ýmislegt spennandi fer að gerast í kjölfarið. Ævintýrið um Öskubusku hefur nú verið sett í nýjan búning af Disney þar sem blandað er saman leiknum atriðum og stórkostlegum tölvuteikningum svo úr verður einstök upplifun sem enginn má missa af. Ævintýrið um Öskubusku er eftir franska rithöfundinn Charles Perrault sem samdi einnig ævintýrin um Rauðhettu og úlfinn, Þyrnirós og Stígvélaða köttinn og byggði þau á gömlum þjóðsögum Frakka. Þessi ævintýri urðu síðan hluti af ævintýrasafni Grimms-bræðra eins og öllum er kunnugt. Í þessari nýju útgáfu ævintýrsins lifnar þessi sígilda saga við á nýjan og töfrandi hátt þar sem leiknum og lifandi atriðum er blandað saman við litríkar tölvuteikningar þannig að úr verður upplifun sem heillar bæði börn og fullorðna upp úr skónum. Ævintýrið um Öskubusku er sannarlega fjölskylduskemmtun eins og hún gerist allra best og vonandi lætur enginn þá upplifun fram hjá sér fara.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Walt Disney PicturesUS
Genre FilmsUS
Beagle Pug FilmsGB
Allison Shearmur ProductionsUS