Náðu í appið
Ruthless People

Ruthless People (1986)

"Barbara Stone has just been kidnapped by K-Mart, and what she doesn't know won't hurt her."

1 klst 33 mín1986

Sam Stone er fataframleiðandi, og kvæntist Barböru, til að komast yfir peninga sem hún átti að erfa eftir dauðvona föður sinn, en faðir hennar dó...

Rotten Tomatoes93%
Metacritic78
Deila:
6 áraBönnuð innan 6 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiHræðslaHræðslaBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

Sam Stone er fataframleiðandi, og kvæntist Barböru, til að komast yfir peninga sem hún átti að erfa eftir dauðvona föður sinn, en faðir hennar dó hinsvegar ekki fyrr en 15 árum eftir hjónabandið. Stone undirbýr nú morð á eiginkonunni og segir kærustunni Carol hverjar fyrirætlanir hans eru. Á leiðinni heim þar sem hann ætlar að koma konunni fyrir kattarnef, þá er hún ekki heima. Hann fær símtal frá einhverjum sem segist hafa rænt henni og hótar að drepa hana ef Stone dirfist að hringja í lögregluna. Stone hringir að sjálfsögðu beint í lögregluna, í þeirri von að mannræningjarnir geri honum þann greiða að kála konunni. Það sem Stone veit ekki er að mannræningjarnir, Ken og Sandy, eru ekki mjög harðsvíruð, og í raun er Barbara mun illskeyttari en mannræningjarnir, sem eru að gera þetta af því að Stone stal hönnun þeirra og mokgræddi á öllu saman.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Touchstone PicturesUS
Silver Screen Partners II

Verðlaun

🏆

Danny De Vito var tilnefndur til Golden Globe fyrir bestan leik í gamanmynd.

Gagnrýni notenda (2)

Þetta er bráðskemmtileg mynd. Eðlilegasta mynd Jim Abrahams og David Sucker, það er að segja ekki verið að spoofa aðrar myndir. Danny er búinn að fá nóg af konunni sinni og æltar að l...

★★★★☆

DeVito leikur mann sem hefur fengið nóg af eiginkonu sinni og verður því ekki fyrir miklum vonbrigðum þegar henni er rænt af vonlausum mannræningjum. Fín afþreying en ekki vera að búast ...