Náðu í appið
Christmas Vacation

Christmas Vacation (1989)

National Lampoon's Christmas Vacation

"There's No Place Like Home For A Holiday!"

1 klst 37 mín1989

Clark Wilhelm Griswold langar að halda hin fullkomnu Griswold fjölskyldujól.

Rotten Tomatoes72%
Metacritic49
Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Söguþráður

Clark Wilhelm Griswold langar að halda hin fullkomnu Griswold fjölskyldujól. Eftir margra mánaða undirbúning býður hann bæði foreldrum sínum og tengdaforeldrum, og einnig frænda sínum Louis og elliærri frænku sinni Bethany. Clark að óvörum mætir hinn groddaralegi frændi konu hans, Eddie, ásamt allri fjölskyldunni í húsbílnum sínum. Clark er búinn að undirbúa húsið og skreyta með meira en 20.000 ljósaperum og búinn að ná í risastórt jólatré sem passar eiginlega ekki inn í stofuna. Fljótlega fara að koma brestir í alla framkvæmdina, kalkúninn er ekki eins og hann átti að vera, köttur frænkunnar nagar í sundur rafmagnskapal og Louis kveikir í trénu. Til að kóróna allt saman þá fær hann ekki langþráðan jólabónus frá fyrirtækinu, og þá sýður endanlega upp úr hjá okkar manni.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Hughes EntertainmentUS
Warner Bros. PicturesUS

Gagnrýni notenda (4)

★★★★★

Christmas Vacation er ein af mörgum Vaction myndunum sem hafa verið gerðar en er án nokkurs vafa sú lang besta. Clark Griswold ætlar að halda hin fullkomnu jól með fjölskyldunni sinni en ...

Þetta var frábær mynd þótt þó fóru ekki í frí í alvörunni. Þetta var seinasta Góða National Lampoon Vacation myndin og mæli ég með National Lampoons Vacation og National Lampoons Eu...

Frábær mynd. Með betri jólamyndum sem ég hef séð. Chevy Chase er frábær sem fjölskyldufaðirinn í Griswald fjölskyldunni. Ég segi ekki meir enn að þau ætla að halda fullkominn jól (s...

Þessi mynd er skylduáhorf fyrir hver einustu jól enda ekki oft sem svona grín jólamyndir heppnast jafn vel. Myndin er bráðfyndin og þeir sem vilja að eins slappa af og losa smá jóla stress...