Mér finnst þessi mynd frekar skemmtileg en ekki mjög góður söguþráður þó. Tom Hanks..var fyrir vonbrigðum með hann í þessari mynd og Meg Ryan er alltaf eins. Samt ágæt skemmtun
Sleepless in Seattle (1993)
"What if someone you never met, someone you never saw, someone you never knew was the only someone for you?"
Eftir að Sam Baldwin missir eiginkonu sína þá flytur hann ásamt syni sínum Jonah frá Chicago til Seattle, til að jafna sig á sorginni eftir dauða konunnar, Maggie.
Öllum leyfðSöguþráður
Eftir að Sam Baldwin missir eiginkonu sína þá flytur hann ásamt syni sínum Jonah frá Chicago til Seattle, til að jafna sig á sorginni eftir dauða konunnar, Maggie. Átján mánuðum síðar þá er Sam enn að syrgja konuna og á erfitt með svefn. Þó að Jonah sakni einnig mömmu sinnar, þá vill hann finna nýja konu handa pabba sínum, en Sam er ekki enn til í að fara að hitta aðrar konur. Á aðfangadagskvöld, eftir að Jonah hringir í símatíma í útvarpi, þá segir Sam sögu sína í spjallþættinum sem sendur er út um öll Bandaríkin, hvað samband hans og Maggie hafi verið gott og hvað hann sakni hennar mikið. Á meðal margra kvenna sem heyra í Sam í útvarpinu er Annie Reed, blaðamaður sem býr í Baltimore. Hún hrífst af sögu Sam þó að hún sé sjálf trúlofuð kærasta sínum. En samband hennar við kærastann Walter er langt frá draumi hennar um hið ástríka líf sem henni hefur alltaf dreymt um þegar hún horfir á bíómyndina An Affair to Remember...
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar
Myndir
Bakgrunnsmyndir
Plaköt
Framleiðendur

Verðlaun
Tilnefnd til tveggja Óskarsverðlauna. Fyrir tónlist og handrit.
Gagnrýni notenda (2)
Frábær rómantísk gamanmynd um mann(Tom Hanks)sem hefur misst konu sína. Hann flytur síðan til Seattle og þar lendir hann í því að sonur hans hringir í svona sálfræðiútvarpsþátt og l...

































