Náðu í appið
Beethoven's Big Break

Beethoven's Big Break (2008)

"Stór hundur með enn stærra hjarta"

1 klst 41 mín2008

Það þekkja margir myndirnar af Sankti-Bernharðshundinum Beethoven sem hefur yljað mörgum um hjartaræturnar í gegnum árin.

Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Hvar má horfa

Söguþráður

Það þekkja margir myndirnar af Sankti-Bernharðshundinum Beethoven sem hefur yljað mörgum um hjartaræturnar í gegnum árin. Nú er komin ný mynd um ævintýri hins 85 kílóa og síglaða Beethovens. Segir myndin frá dýraþjálfaranum Eddie (Jonathan Silverman) sem vill ekki sjá gæludýr á heimili sínu. Þegar Billy, sonur hans, finnur hinn heimilislausa Beethoven vill hann sjá um hann og hvolpana hans, en Eddie leyfir honum það ekki. Aðstæðurnar breytast fljótt þegar hundaþjófar ræna aðal„leikaranum“ í nýrri hundamynd sem Eddie vinnur við. Framleiðendurnir þurfa að fá annan hund í skyndi og Beethoven verður því óvænt aðalleikari í kvikmynd. Því þarf Eddie skyndilega að búa með hundinum og þjálfa hann fyrir hlutverkið, en það er hægara sagt en gert…

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Universal PicturesUS