Snilld. Eddie Murphy er brilliant í hlutverki Axel Foley og er þetta eitt af bestu hlutverkum sem hann hefur tekið að sér. Þetta er myndin sem kom honum á kortið sem stórstjörnu. Svo er Judg...
Beverly Hills Cop (1984)
"In Detroit a cop learns to take the heat. In L.A. he learns to keep his cool. "
Detroit löggan Axel Foley er hæstánægð þegar vinur hans Mikey Tandino frá Kaliforníu kemur óvænt í heimsókn til Detroit.
Bönnuð innan 12 ára
Ofbeldi
BlótsyrðiSöguþráður
Detroit löggan Axel Foley er hæstánægð þegar vinur hans Mikey Tandino frá Kaliforníu kemur óvænt í heimsókn til Detroit. Skömmu eftir að Mikey kemur í heimsókn er hann myrtur, beint fyrir framan Axel, af manni að nafni Zack. Axel eltir Zack til Beverly Hills í Kaliforníu þar sem lögreglustjórinn Andrew Bogomil setur rannsóknarlögreglumanninn Billy Rosewood og félaga hans John Taggart í að hafa auga með Axel. Axel heimsækir vin sinn Jenny Summers, sem vinnur í listagalleríi. Með hjálp Jenny þá uppgötvar Axel að Zack vinnur fyrir yfirmann Jennyar, Victor Maitland, en hann er eigandi gallerísins. Maitland er líka eiturlyfjabarón sem notar galleríið sem yfirvarp, og Maitland lét Zack drepa Mikey eftir að Maitland sakaði Mikey um að vera að stela frá sér. Með hjálp Jenny, Billy og Taggart, þá gerir Axel hvað hann getur til að Maitland og Zack myrði ekki fleira fólk.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar
Myndir
Bakgrunnsmyndir
Plaköt
Framleiðendur


Verðlaun
Tilnefnd til Óskars fyrir besta handrit skrifað beint fyrir hvíta tjaldið, og tilnefnd til BAFTA fyrir tónlist ( Harold Faltermayer )
Gagnrýni notenda (2)
Beverly hills cop mynirnar voru alltaf í mikilu uppháldi hjá mér þegar ég var lítil þetta er svona ekta hollywood myndir. gott grín í þeim flottir skotbardagar og almennt góð mynd eddie m...
































