The Darkest Hour (2011)
"The Invasion Begins Christmas Day"
Vísindatryllir um nokkur ungmenni sem eru á ferðalagi í Moskvu þegar geimverur gera innrás og beita aðferðum sem eru jafnáhrifaríkar og þær eru magnaðar.
Bönnuð innan 12 ára
Ofbeldi
Hræðsla
BlótsyrðiSöguþráður
Vísindatryllir um nokkur ungmenni sem eru á ferðalagi í Moskvu þegar geimverur gera innrás og beita aðferðum sem eru jafnáhrifaríkar og þær eru magnaðar. Ungmennin fimm, Sean, Anne, Skyler, Natalie og Ben, vita ekki frekar en aðrir hvað er að gerast þegar þúsundum undarlegra „ljósbolta“ tekur skyndilega að rigna yfir borgina. Það líður hins vegar ekki langur tími þar til í ljós kemur að þessir „boltar“ eru í raun lífform utan úr geimnum sem komið er til jarðar í tvennum tilgangi, annars vegar til að gleypa í sig alla rafmagnsorku og hins vegar til að útrýma allri samkeppni um hana. Nú eru góð ráð dýr og um leið og fimmmenningarnir neyðast til að forða sér hver sem betur getur verður einhver að finna leið til að hafa betur gegn þessum skelfilega vágesti. En það er hægara sagt en gert ...
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Aðrar myndir
Myndir
Bakgrunnsmyndir
Plaköt
Framleiðendur


































