Bumblebee (2018)
"Every adventure has a beginning"
Sagan segir upprunasögu vélmennisins Bumblebees.
Bönnuð innan 12 ára
OfbeldiSöguþráður
Sagan segir upprunasögu vélmennisins Bumblebees. Hin átján ára gamla Charlie Watson er nýbúin að fá bílprófið og dreymir um að eignast bíl. Peningar fyrir honum eru hins vegar af skornum skammti og því hrósar hún happi þegar henni tekst að nurla saman fyrir gamalli Volkswagen-bjöllu sem hún finnur í bílakirkjugarði og er eins og fyrir einhverja töfra enn gangfær. Staðráðin í að gera bílinn upp eftir bestu getu fer Charlie með bjölluna heim í bílskúr foreldra sinna þar sem hún á eftir að uppgötva sér til mikillar undrunar að þessi bíll er langt frá því að vera eins og aðrir bílar. Í raun er þetta vélmennið Bumblebee sem er í felum og á flótta, bæði undan sérsveitarmönnum svo og öðrum vélmennum utan úr geimnum ...
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar
Aðrar myndir
Myndir
Bakgrunnsmyndir
Plaköt
Framleiðendur


































