Náðu í appið
Wisconsin Death Trip

Wisconsin Death Trip (1999)

1 klst 16 mín1999

Þessi nærgöngula, skuggalega en jafnframt bráðfyndna frásögn af hörmungum sem gengu yfir smábæ í Wisconsin við lok 19.

Rotten Tomatoes75%
Metacritic40
Deila:

Söguþráður

Þessi nærgöngula, skuggalega en jafnframt bráðfyndna frásögn af hörmungum sem gengu yfir smábæ í Wisconsin við lok 19. aldarinnar byggir á samnefndri bók Michael Lesy. Lesy safnaði myndum og frásögnum úr dagblöðum bæjarins Black River Falls og raðaði þeim saman á óvæntan og uggvænlegan máta. Það er eins og íbúarnir glími við óvenjulega veiki; dagblöðin fjalla reglulega um sturlun, sérvisku og ofbeldi meðal þorpsbúa. Sjálfsvíg og morð eru algeng. Fólkið er ásótt af draugum, djöflum, útlögum og brennuvörgum á táningsaldri. Eins og bókin byggir myndin alfarið á raunverulegum fréttum frá Black River Falls og skjölum frá geðveikrahæli í grenndinni. Myndin nýtir einnig ljósmyndir frá þessum tíma í bland við nýrri svipmyndir úr þessum dularfulla bæ.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

BBCGB
BBC ArenaGB
Hands On
CinemaxUS