Náðu í appið
Monsters, Inc.

Monsters, Inc. (2001)

Skrímsli hf.

"Since the very first bedtime, all around the world, children have known that once their mothers and "

1 klst 32 mín2001

Eins og allir vita búa skrímsli í Skrímslaborg og fá orku frá öskrum barna sem hræðast þau.

Rotten Tomatoes96%
Metacritic79
Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Söguþráður

Eins og allir vita búa skrímsli í Skrímslaborg og fá orku frá öskrum barna sem hræðast þau. Staðreyndin er hins vegar að sum skrímslin í Skrímslaborg eru ekki síður hrædd við börn en börnin við þau. Þrátt fyrir það neyðast skrímslin til að halda áfram að hræða börnin því annars verður borgin þeirra orkulaus. Og nú er illt í efni. Málið er að upp á síðkastið hefur orðið sífellt erfiðara að hræða börn þannig að þau gefi frá sér öskur og þar með orku. Sum þeirra eru meira að segja alveg hætt að vera hrædd við skrímsli og öskra bara alls ekki neitt. Við þessum yfirvofandi orkuskorti þarf auðvitað að bregðast með auknum ótta en málin taka heldur betur nýja stefnu þegar lítil stúlka eltir grænbláa skrímslið Sölmund inn í Skrímslaborg ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

PixarUS

Verðlaun

🏆

Tilnefnd til fernra Óskarsverðlauna og hlaut þau fyrir besta lagið (If I Didn’t Have You - Ef ég hefði þig ekki) eftir Randy Newman.

Gagnrýni notenda (16)

Þessi teiknimynd er fyrir alla og er a.m.k. sú lang findnasta sem ég hef séð. Billy Crystal talar fyrir Mike sem sér aðalega um húmorinn. John Goodman talar fyrir Sulley og er hann meistari ...

★★★★☆

Þessi er hreint og beint æðisleg, hún er svakalega findin, ótrúlega vel gerð, og stuttmyndin á undan henni fær mann til að væla af hlátri. Söguþráðurinn er mjög góður og eigilega...

Þessi mynd er snilld. Ég byrjaði bara á því að næstum pissa á mig úr hlátri afstuttmyndinni. Monsters er mjög vel gerð og sprenghlægileg en væmnu atriðin í endanum spilltu aðeins fyr...

Hér er komin nýjasta mynd þeirra félaga sem gerðu Toy Story myndirnar, Monsters, Inc. Hún fjallar um þá félaga Mike og Sulley sem að vinna í Monsters, Inc. Þeirra hlutverk er að hræða b...

Þessi mynd stóðst alveg undir væntingum. Þetta var afbragð Disney mynd með flottum bröndurum og látbrögðum. Litli kallinn með eina augað var frábær. Svo var þessi stuttmynd á undan...

FRÁBÆR, í einu orði sagt. Skrímsli, hf fjallar um skrímsli sem lifa á öskrum barna, en svo kemst lítil stelpa inní veröld skrímslanna og þá verður allt brjálað. Sjúklega fyndin mynd,...

Félagi minn sendi mér sjóræningja eintak af þessari, svo ég gæti litið á hana, en eins og þeir vita sem hafa lesið eitthvað frá mér á þessum síðum þá á ég erfitt með á sjá ný...

Mjög góð fjölskyldumynd. En það vantar samt eitthvað í hana. Þess vegna gef ég henni bara 3 stjörnur en ekki 4.

Svona ágætis barnamynd sem er vel gerð með fínum talsröddum en myndin er aldrei nógu fyndin né skemmtileg þangað til maður sér endinn.

Ég fór á þessa mynd á forsýningu og hún er frábær. Með Goodmann í aðalhlutverki er þessi mynd ein besta skemmtun til að fara á. Það sést greinilega að það eru sömu höfundarnir s...

★★★★★

Enn og aftur nær Pixar fyrirtækið að koma manni á óvart! Þvílíkar teiknibrellur, þessi mynd er hreint augnakonfekt! Fyrir myndina var sýnd stuttmyndin 'For the Birds' (2000) frá Pixar, s...

Enn og aftur sýnir Pixar fyrirtækið að þeir eru bestir í bransanum. Þeir virðast vera algjörlega ófærir um að framleiða neitt annað en snilld, og í þetta sinn fara þeir svo langt fram...

Monsters, Inc. er fyrirtaks teiknimynd, sem hefði yfirleitt auðveldlega stolið titlinum besta teiknimynd ársins. Árið 2001 fær hins vegar grænt tröll að nafni Shrek þá nafnbót. Þrátt fy...

★★★★★

Ég sá þessa mynd á seinasta fimmtudag í starfsmannasýningu hjá Sambíónum og ég bjóst við góðri mynd en fékk frábæra mynd sem fjallar um tvö skrímsli sem vinna saman í fyrirtæki se...

Myndir í sömu seríu