Náðu í appið
Sleuth

Sleuth (2007)

"Obey the rules."

1 klst 26 mín2007

Andrew Wyke (Michael Caine) er aldinn rithöfundur sem býr einn á mikilfenglegu og tæknilega fullkomnu sveitasetri.

Rotten Tomatoes36%
Metacritic49
Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

Andrew Wyke (Michael Caine) er aldinn rithöfundur sem býr einn á mikilfenglegu og tæknilega fullkomnu sveitasetri. Eiginkona hans yfirgaf hann fyrir yngri mann, leikarann Milo Tindle (Jude Law), sem bæði er gáfaður og heillandi. Einn dag ákveður Wyke að bjóða Tindle á setrið, og ætlar Tindle að nota þetta tækifæri til að sannfæra hinn þrjóska Wyke um að tíminn sé kominn að sleppa takinu á eiginkonu sinni og skrifa undir skilnaðarskjölin. Wyke hefur aftur á móti annað á prjónunum, og hefur meiri áhuga á að spila með Tindle. Hann leiðir Tindle út í margs kyns gjörðir sem hann hefur skipulagt vandlega til að geta náð fram hefndum gegn ótrúrri eiginkonu sinni. Upphefst þá mikil barátta Tindle við klókan og úthugsaðan rithöfundinn, og eru afleiðingarnar hættulegri en hann hefði getað ímyndað sér.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Castle Rock EntertainmentUS
Timnick FilmsUS
Riff Raff Film Productions
Mandate InternationalUS
Sony Pictures ClassicsUS

Verðlaun

🏆

1 verðlaun og 2 tilnefningar